Ég fékk núna rétt áðan ábendingu um að Hanna Birna borgarstóri væri á Rás 2 hjá Sirrý og tæki við símtölum frá hlustendum. Borgarstjóri hefur ekki séð ástæðu til að hitta okkur í Brimborg, svara tölvupóstum né opnum bréfum.
Ég hringdi þá bara sem almennur hlustandi inn í þáttinn og náði að koma sjónarmiðum okkar að einhverju leiti á framfæri. Ég held að hægt sé að hluta á þáttinn á netinu. Vona það.
Reyndar voru einhverjar efasemdir hjá borgarstjóra og þáttastjórnandanum að innlegg mitt flokkaðist undir atvinnumál sem var til umræðu í þættinum. Ég vil þó meina það því fyrirtæki veita atvinnu, Brimborg er eitt af stærri fyrirtækjum borgarinnar og í hópi stærstu ferðaþjónustufyrirtækja borgarinnar (Brimborg rekur þrjár bílaleigur, Thrifty Car Rental, Dollar Car Rental og Saga Car Renbílaleiganna mun líklega slaga hátt í milljarð - stór hluti í beinhörðum gjaldeyri) og veitir 180 manns vinnu - 180 fjölskykldur byggja afkomu sína á fyrirtækinu. Flestimyndu skilgreina það sem atvinnumál.
Málflutningur okkar í Brimborg er einfaldur og byggir á jafnræði og réttlæti í merkingunni að sama eigi yfir alla í borginni að ganga, hvort sem er fyrirtæki eða fjölskyldur. Borgin tók við lóðum sem var skilað og hefur gert í áratugi. Án fyrirvara hættir borgin að taka við lópðuim og ráðuneyti sveitarstjórnarmála úrskurðaði þá ákvörðun ólöglega.
Nú hefur ráðuneytið úrskurðað í 8 málum fjölskyldna og fyrirtækja og alltaf úrskurðað að borgin hafi brotið jafnræðisreglu stjórnsýslulega þ.e. borgin virti ekki góða stjórnsýsluhætti.
Ég benti líka á í samtalinu að þrátt fyrir að borgin hefði hætt að taka við lóðum þá tók fyrirtæki að 3/4 hlutum í eigu borgarinnar, Faxaflóahafnir, ákvörðun um að taka við lóð Eimskipa nokkrum vikum eftir að lokað var á alla aðra. Sömu fulltrúar sitja í stjórn Faxaflóahafna og sitja í borgarráði og tóku sitthvora ákvörðunina.
Það var ýmislegt sem ég náði ekki að koma á framfæri þar sem borgarstjóra og þáttastjórnandanum þótti símtalið augljóslega óþægilegt.
M.a. hefur ráðuneytið úrskurðað borginni í óhag í öllum þeim 8 málum sem hafa verið kláruð. Í því samhengi er rétt að koma fram að borgin hefur endurgreitt sumum fjölskyldum sem áttu lóðir við hlið þeirra sem ekki hafa fengið endurgreitt. Eini munurinn að þeir sem fengu að skila voru þeir sem skulduðu borginni en þeir sem höfðu staðgreitt lóðina fengu ekki að skila.
Ég náði ekki heldur tímans vegna að koma því á framfæri að með því að senda fólk og fyrirtæki í þetta kæruferli í gegnum ráðuneytið og síðan þegar því er lokið og úrskurður borginni í óhag þá ætlar borgin að hundsa niðurstöðu. Borgin er um leið að segja að leiðin sé gagnslaus nema auðvitað að úrskurðurinn sé borginni í hag.
Einnig náði ég ekki að koma á framfæri að borgin hefur skildað lóðarhafa að skila lóðum í áratugi þegar vel árar og ávallt á sama tíma að bannað framsal lóðanna (bannað að selja og braska). Núna þegar hart er í ári þá breytir borgin reglunum afturvirkt, bannar skil en leyfir framsal þegar enginn markaður er fyrir lóðir.
Borgin sem einokuraðili á lóðamarkaði getur ekki hagað sér svona og í því samhengi er rétt að hafa í huga að ekkert annað sveitarfélag hefur farið þessa leið.
Flokkur: Bloggar | Sunnudagur, 7. mars 2010 (breytt kl. 12:58) | Facebook
Um bloggið
Vangaveltur Egils
Eldri færslur
2010
2009
2008
2007
2006
Síður
- Lýðræðislegar umbætur á íslenska lýðveldinu
- Andsvar Brimborgar til borgarráðs 5. janúar 2009
- Erindi til Alþingis um etanól bíla - mars 2007
- Erindi til Alþingis um etanól bíla - Nóv. 2006
- Stöðugleikastýrikerfi í bílum bjargar mörgum mannslífum
- 3. Spurningar um menntamál
- 2. Spurningar um umhverfismál
- 1. Spurningar um samgöngu- og umferðaröryggismál
- Björt framtíð bílgreinarinnar og samfélagsleg ábyrgð
- Neytendur eru skynsamir
- [ Fleiri fastar síður ]
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.7.): 13
- Sl. sólarhring: 14
- Sl. viku: 125
- Frá upphafi: 371178
Annað
- Innlit í dag: 12
- Innlit sl. viku: 99
- Gestir í dag: 12
- IP-tölur í dag: 12
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Athugasemdir
Ég heyrði þáttinn. Aðkoma og erindi þitt var alls ekki í samræmi við það sem verið var að ræða um.
Eyjólfur Sturlaugsson, 7.3.2010 kl. 13:10
Ótrúlegt, Íslendingar eru svo ósvífnir að svara ekki bréfum. Greinilegt að Borgarstjóri mun ekki hætta sér í útvarp aftur.
Gunnar Skúli Ármannsson, 7.3.2010 kl. 13:12
Eyjólfur: Eins og ég skrifa hér í bloggfærslunni að ofar þá er ég ósamála þér en gott og vel. En þá komum við að öðru og það er hvort kjörnir fulltrúar eigi að geta valið hvað sé rætt hverju sinni.
Ég er á því að svo eigi ekki að vera og að þeir verði að axla ábyrgð á erfiðum hlutum og svara erfiðum málum. Hvar sem er. Hvenær sem er. Það eru borgararnir sem eiga að velja stað og stund og umræðuefnið en ekki kjörnu fulltrúarnir.
Gunnar Skúli: Takk og það gæti verið rétt hjá þér að borgarstjóri muni ekki hætta sér í útvarp aftur. Þá er borgarstjóri að segja að hann vilji stýra umræðunni. Velja þó góðu og þægilegu og að mínu mati er það rangt.
Í alvöru lýðræðisríki eru það borgararnir sem eiga að velja umræðuefni og stað og stund.
Egill Jóhannsson, 7.3.2010 kl. 13:23
Ef frekar á að leifa brask með lóðir þá geta væntanlega einhverjir fjársterkir aðilar náð sér í góðar lóðir fyrir lítinn pening og geymt þær þangað til að allt er komið á fullt aftur og þá selt þær hæst bjóðendum. Hvað finnst borgarstjóra um það?
Jón Árelíus Þorvaldsson (IP-tala skráð) 7.3.2010 kl. 13:45
Mér líst vel á aðferð þína Egill og finnst alveg bráðsniðug. Ég notaði svipaða aðferð þegar ég sendi fyrirspurn til félagsmálaráðuneytis varðandi ákveðin málefni. Ítrekaði mörgum sinnum fyrirspurnina og fékk aldrei svar. Svo tók ég eftir því að þáverandi aðstoðamaður félagsmálaráðherra Hrannar B Arnarson hafði greinilega frítíma í að blogga svo ég skellti fyrirspurninni inn í athugasemdakerfi á bloggsíðu hans með þeim orðum að ég vonaði að hann væri duglegri að svara á blogginu heldur en í vinnunni. Það var eins og við manninn mælt að athugasemdakerfið logaði af reiðum lesendum sem sögðu Hrannari að skammast sín og hætta að blogga þar til að hann hefði svarað mér. 2 dögum síðar bárust mér allt í einu svör bréfleiðis við fyrirspurninni.
Þessa aðferð kalla ég að ef fólkið kemur ekki upp úr drullunni þá er aðeins eitt ráð við því. og það er að sækja það ofan í skítinn.
Heyr Heyr!!
Jóhann Kristjánsson (IP-tala skráð) 7.3.2010 kl. 13:49
Kannski við sitjum uppi með TVÆR Lady GaGa...lol...! Mér finnst óskiljanlegt & mjög sorglegt að sjá RÁNfuglinn berjast gegn atvinnulífinu, hélt að ég myndi aldrei upplifa það, en ekkert kemur manni lengur á óvart þegar stjórnmál eru annars vegar. Þú & fyrirtækið þitt Brimborg eigið alla mína samúð, ég óska þér & öðrum aðilum sem nú standa í deilum við Reykjavíkurborg velfarnaðar í ykkar málum. Sorglegt að sjá stjórnmálamenn ávalt stuðla að SUNDRUNG í stað RÉTTLÆTIS. Nú er mál að linni...lol...lol...!
kv. Heilbrigð skynsemi (fun.blog.is)
Jakob Þór Haraldsson, 7.3.2010 kl. 14:21
Allir sem einhver viðskipti eiga við borgina lenda í því sama og þú Egill.Erindum vísað frá Hönnubirnunum til Fjármáladeildar, þaðan eitthvað annað. Stjórnsýslan er að hafa af fólki réttindi með því að þreyta það. Hef í fjórgang þurft að skrifa Reykjavíkurborg bréf og í öllum tilvikum þurft að leita til Umboðsmanns Alþingis til að fá svar. Alla úrskurði hundsa þeir það er reglan.
Einar Guðjónsson, 7.3.2010 kl. 14:25
Er nú blessaður sjálfstæðismaðurinn kominn upp á kannt við Sjálfstæðisflokkinn?
Valsól, 7.3.2010 kl. 14:41
Valsól: Það er fátt ömurglegra en fólk sem hugsar algerlega eftir flokkslínum og því legg ég mig fram um að gera það ekki. Veit ekki með þig.
Ég legg mig fram um að vera samkvæmur sjálfum mér (sem er btw ekki hægt af hugsað er eftir flokkslínum fjórflokksins) og á þessu bloggi hefur það komið skýrt fram frá því ég byrjaði að blogga eða frá september 2006. En kannski hafðir þú ekki fyrir því að kynna þér málin áður en þú settir kommentið þitt inn.
Egill Jóhannsson, 7.3.2010 kl. 15:09
Hanna Birna er til skammar og það væri óskandi að hún færi út á hafsauga. Að ætla sér að byggja nýjan Landspítala í þessu ástandi, sýnir bara að hún og meiri hlutinn í borgarstjórn er að hugsa um verktakana, vini sína.
Heldur fólk að það verði sanngjarnt útboð í þessum málum? Nei - hér eru nokkrir aðilar sem hanga á sjálfstæðisflokksspenanum og þeim þar að hyggla. Sjálfstæðisflokknum er hins vegar hjartanlega sama þó þeir eyðileggi eitt fallegasta hverfi borgarinnar með þessari spítalahlussu. Þeim finnst líka lítið mál að setja þessa atvinubótavinnu á herðar skattborgaranna.
MargrétJ (IP-tala skráð) 7.3.2010 kl. 15:14
Þú stendur þig vel í þessu stríði við borgina Egill og ég vil þakka þér þann stuðning við þær átta fjölskyldur sem standa einnig í stappi við borgina vegna lóðaskilamála í Úlfarsárdalnum. Mér finnst athyglisvert hvernig borgarstjóri stillir lögmönnum borgarinnar upp sem skjaldborg um pólitískar ákvarðanir sem teknar eru í borgarráði eins og hér er raunin. Mér er spurn hvort lögmenn borgarinnar séu sáttir við að þurfa alfarið að axla ábyrgð á þessari "óréttmætu" og "ólögmætu" og "ósanngjörnu" ákvörðunartöku politíkusanna.
Arney Einarsdóttir (IP-tala skráð) 7.3.2010 kl. 16:10
Takk fyrir Arney og þú kemur að kjarna málsins. Það er ekki mjög kjarkmikil framganga þessara borgarfulltrúa að fela sig á bak við embættismennina.
Nú höfum við öll staðið í þessari baráttu í næstum 17 mánuði og búin að fara í gegnum kæruferli sem tók 10-12 mánuði. Það sem mér finnst einna alvarlegast og tek undir með Einari Guðjónssyni sem kommentar hér að ofan að eftir að við og allar þessar fjölskyldur erum búin að fara í gegnum lögformlegt kæruferli (ráðuneytið) og niðurstaðan er sú að ákvörðun borgarinnar er úrskurðuð ólögmæt þá er svar borgarinnar að hundsa niðurstöðuna.
Um leið er borgin að gefa okkur puttann og um leið segja að þetta kæruferli sé gagnslaust - nema auðvitað niðurstaðan sé borginni hagstæð. Þetta er stjórnsýsla sem er ólíðandi og það er mjög mikilvægt að þessu verði breytt og að kjörnir fulltrúar geti ekki skotið sér undan ábyrgð með því að fela sig undir pilsfaldi embættismannanna.
Egill Jóhannsson, 7.3.2010 kl. 17:19
Hanna Birna og allir þeir aðilar sem koma að þessari ákvarðanatöku varðandi lóðarmálin munu ekki fá mitt atkvæði, það er alveg á hreinu og skilgreini ég mig hægra megin við miðjuna.
Margrét (IP-tala skráð) 7.3.2010 kl. 17:33
Sæl og takk fyrir stuðninginn Margrét,
Ég tek undir orð Egils og spyr mig hvort þetta snúist um að þreyta borgarana til þess að þegja. Það vita jú allir að það er kostnaðarsamt og tímafrekt (gæti tekið um tvö ár upp í hæstarétt til viðbótar við árið sem fór í að fá úrskurð frá sveitastjórnarráðuneytinu) að standa í málaferlum. Svo virðist sem borgin sé að veðja á það, að a.m.k. hvað varðar þessar átta fjölskyldur. Þ.e.a.s. að þær hafi ekki getu né úthald til að standa í slíku til að fá réttlætinu framgengt. Ég spyr líka hvort búið sé að búa til eitt óþarft dómstig sem opinberir aðilar geti hundsað að vild...Til hvers þá að hafa lögfræðinga að störfum í sveitarstjórnarráðuneytinu???Úrskurðirnir í málum fjölskyldnanna átta sýna fram á ítrekað brot á jafnræðisreglunni (og þar með einbeittan brotavilja), bæði m.t.t. þeirra sem fengu úhlutunarlóðir annars vegar og eins gagnvart hinum sem fengu að skila vegna þess að þeir skulduðu borginni.
Arney Einarsdóttir (IP-tala skráð) 7.3.2010 kl. 17:46
Held því miður að allur rekstur sveitarfélaga verði að vera bundin í lög og að tiltekið sé nákvæmlega hvernig þau eiga að bregðast við t.d. ´´ Nú úskurðar ráðuneyti um skyldu sveitarfélags og skal það þá þegar hlýta henni að viðlögðum háum dagsektum og eru þær aðfararhæfar 30 dögum eftir að úrskurður fellur..´´ Mikilvægasta verkefnið er þó að leggja sveitarfélögin niður eins og við þekkjum þau.
Því miður er þetta sameiginlegur kúltúr embættismanna og stjórnmálamanna. Þannig er borgarlögmaður að vinna á kaupi hjá öllum Reykvíkingum en virðist í embættisfærslum aðallega sérhæfa sig í að reyna að brjóta rétt á borgurunum. Auðvitað ætti að að gæta þess að allir Reykvíkingar njóti lagalegra réttinda í viðskiptum við Borgina.
Einar Guðjónsson, 7.3.2010 kl. 17:47
Þessi skríparleikur hjá Reykjavíkurborg er fullkomin vanvirðing við einstaklinga og fyrirtæki í borginni og ótrúlegt að þau skuli komast upp með svona vinnubrögð. Þetta sama fólk getur svo réttlætt það að fleygja tugum milljarða í tónlistarhúsið sem manni finnst nú ekki beint að ætti að vera á einhverjum forgangslista en líklega er það spenningurinn við að klippa á borðann sem dregur vagninn í því máli en það er kannski eðlilegt þar sem þar eru menn á heimavelli og ógó góðir í borðaklippingum.
Margrét (IP-tala skráð) 7.3.2010 kl. 20:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.