Fjórflokkurinn - fyrir sig og sína

Mál á við stóra launahækkunar(lækkunar)málið getur aðeins komið upp við aðstæður sem íslensk stjórnmálastétt hefur skapað. Um er að ræða einhverskonar skyldleikaræktunarvandamál

Það felst í því að flestir sem á málinu bera ábyrgð hafa á einn eða annan hátt verið settir í stöður út frá flokkstengslum og að auki smá dash af leynd og pukri. Á ég þar við forsætisráðuneytið og bankaráð Seðlabanka Íslands. Gagnrýnin hugsun ræktast út og inn ræktast flokkslínu- og sérhagsmunahugsun.

En ekkert virðist hagga við fjórflokknum þó hann sé ábyrgur fyrir einu mesta hruni vestræns samfélags á friðartímum. Hann heldur áfram að raða sínu fólki í feit embætti óháð hæfni og skiptir þá engu máli hvaða flokkur á í hlut.

Já, ég fullyrði að enginn flokkur sé undanskilinn því þó Vinstri grænir hafi ekki verið við stjórnvölinn í aðdraganda bankahrunsins þá hafa þeir sýnt það eftir að þeir komust til valda að þeir byrja strax á því að setja sitt fólk við kjötkatlana. Þegar á reynir eru af sama sauðahúsi og eru ekki tilbúnir að breyta um háttu.

Sparisjóðirnir voru eitt sinn með kjörorðið - fyrir þig og þína - sem þótti gott og heiðarlegt loforð sem þeir virtu í gegnum árin. Fjórflokkurinn hefur verra kjörorð - fyrir sig og sína. Almenningur blæðir.

Þessu þarf að breyta og bylta stjórnskiplaginu og m.a. innleiða persónukjör þvert á flokka í Alþingiskosningum og einnig innleiða raunhæfa möguleika á þjóðaratkvæðagreiðslum um lagafrumvörp sem Alþingi samþykkir.


mbl.is Loforð frá ráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég er mjög sammál þér Egill, en bendi en á kosningafyrirkomulag sem Njörður P. Njarðvík hefur sett fram.

Það myndi falla vel að því sem þú setur fram í niðurlagi þinnar greinar, sem er mjög góð. Það er alveg víst að það verður aldrei sátt í þessu landi með áframhaldandi kerfi.

Lúðvík Karl Friðriksson (IP-tala skráð) 5.5.2010 kl. 20:39

2 identicon

Sæll Egill.

Hittir naglann á höfuðið eins og svo oft áður!  Flokkarnir munu að lokum hreinsa sig sjálfir innanfrá.  Ég kíkti við hjá Bjarna Benediktssyni á opnum fundi á Seltjarnarnesi í gær.  Það kom mér þægilega á óvart, að það er rík krafa um breytingar í grasrótinni - venjulegt fólk í þessum flokkum hefur nefnilega ágæta siðferðiskennd, sem því miður virðist ekki eiga við um allt of marga kjörna fulltrúa þegar á reynir.  Henni er misboðið um allt samfélagið, þvert á flokkslínur.  Einmitt þess vegna er líklegt að hinn ágæti Jón Gnarr verði næsti borgarstjóri í Reykjavík :)

Baráttukveðjur!

Björn Þorri Viktorsson (IP-tala skráð) 5.5.2010 kl. 22:14

3 identicon

Alveg sammála, eitt sem ég hef t.d. alldrei skilið að við fáum ekki að kjósa fólk inná þig heldur bara flokka (þar sem búið er að raða fólki inn) en svo þegar einhverjum þingmanninum dettur í hug að ganga úr flokknum sínum þá situr hann áfram á þingi og það fækkar bara um einn í flokknum, samt kusum við flokkin en ekki mannin.

Jón Árelíus Þorvaldsson (IP-tala skráð) 5.5.2010 kl. 22:23

4 Smámynd: Egill Jóhannsson

Lúðvík. Margar hugmyndir Njarðar eru fínar en það er mikilvægt að það séu sem flestir að setja fram sínar hugmyndir um allt land og sem víðast. Þannig eykst þrýstingurinn á fjórflokkinn. Hann berst um á hæl og hnakka gegn öllum lýðræðisumbótum.

Rétt Björn Þorri, fínt fólk í öllum flokkum en það kemst ekki að vegna þess að flokksklíkur og sérhagsmunapólitík kemur í veg fyrir það.

Jón, góður punktur, þetta gengur ekki upp en samt vill fjórflokkurinn ekki breyta?

Egill Jóhannsson, 6.5.2010 kl. 06:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband