Þessi grein birtist fyrst í Morgunblaðinu 11. maí 2007.
Í alþjóðlegri umferðaröryggisviku Sameinuðu þjóðanna, sem lauk nýlega, kom fram að umferðarslys eru nú einn mesti ef ekki mesti heilbrigðisvandinn á Íslandi. Sú staðreynd að alls lét þrjátíu og einn einstaklingur lífið í umferðinni á síðasta ári leiðir huga okkar, sem störfum í bílgreininni, óneitanlega til stöðugleikastýrikerfis (e. Electronic Stability Control eða ESC) í bílum, en rannsóknir benda til að það sé mikilvægasta öryggistækið síðan bílbeltin litu dagsins ljós.
Hlutfall bílgerða með stöðugleikastýrikerfi í sölu hjá Brimborg er nú 72%, sem er nálega helmingi hærra hlutfall en að meðaltali í Evrópu þar sem það er 42%. Ástæða hærra hlutfalls hjá Brimborg má rekja til þess að í kjölfar niðurstaðna úr rannsóknum sem sýndu fram á mikla kosti stöðugleikastýrikerfis hóf Brimborg markvissa áætlun um innleiðingu búnaðarins sem staðalbúnaðar í þær bílgerðir sem fyrirtækið selur. Árangurinn er eins og áður segir 72%. Nú eru allar gerðir Volvo með kerfið sem staðalbúnað. Um mitt næsta ár verða allir Mazda bílar komnir með búnaðinn, allir Ford bílar haustið 2008 og 88% Citroën 2009, eða allar gerðir nema Citroën C1, sem er þríburi við Toyota AYGO og Peugeot 107. Verða því 97% bíla frá Brimborg komin með stöðugleikastýrikerfi sem staðalbúnað árið 2009.
Hvað er stöðugleikastýrikerfi?
Stöðugleikastýrikerfi er háþróaður rafeindabúnaður í bílum sem leitast við að afstýra bílslysum. Búnaðurinn tekur í augnablik stjórnina af ökumanni við þær aðstæður þegar bíllinn rennur óvænt til eða ef ökumaður þarf að bregðast skyndilega við hættu á veginum. Skynjarar nema stefnu bílsins og ef óvænt breyting verður á stefnunni m.v. akstursstefnu senda skynjararnir boð til stöðugleikastýrikerfisins sem réttir bílinn af og getur þannig afstýrt slysi, t.d. stjórnlausum snúningi, útafakstri eða veltu.Allir helstu fagaðilar á sviði umferðaröryggismála, t.d. stofnanir á borð við EuroNCAP og Thatcham í Evrópu og NHTSA í Bandaríkjunum mæla með stöðugleikastýrikerfi í bílum og benda á að víðtækar rannsóknir sýni að hægt sé að fækka banaslysum um á bilinu 20-40% með búnaðinum. Má færa rök fyrir því að stöðugleikastýrikerfi séu sérlega áhrifarík við íslenskar aðstæður þar sem útafakstur er algengur við missi stjórnar á bílnum t.d. í lausamöl.
Draga má úr fjölda banaslysa hér á landi
Skv. skýrslu Umferðarstofu lést þrjátíu og einn einstaklingur á Íslandi í umferðinni á síðasta ári og er sláandi hversu oft útafakstur átti sér stað í slysunum. Undanfarin 10 ár hafa að jafnaði látist tuttugu og fjórar manneskjur á ári í bílslysum hér á landi. Þó að ávallt verði að fara varlega þegar erlendar tölur eru heimfærðar á íslenskan veruleika bendir margt til þess að stöðugleikastýrikerfi í öllum bílum geti árlega komið í veg fyrir allt að fimm banaslys í umferðinni hér á landi og fækkað alvarlega slösuðum um allt að þrjátíu og fjóra einstaklinga.Samkvæmt upplýsingum Brimborgar hóf Rannsóknarnefnd umferðarslysa í fyrra að skrá búnað bíla, sem lentu í umferðarslysum, sem er mikilvægur þáttur við rannsóknir á orsökum umferðarslysa. Skv. upplýsingum frá nefndinni áttu á síðasta ári þrjátíu og þrjár bifreiðar aðild að banaslysum í umferðinni, þar af var mikill minnihluti þeirra búinn stöðugleikastýrikerfi eða einungis tólf. Sjö þessara tólf bíla voru orsakavaldar og í flestum tilvikum var um útafakstur að ræða þar sem aðeins einn bíll átti hlut að máli.
Lægri tryggingariðgjöld
Erlendar stofnanir á sviði umferðaröryggismála hafa hvatt bílaframleiðendur til að innleiða þennan búnað sem staðalbúnað og einnig hafa þær hvatt tryggingarfélög til að veita eigendum bíla með þessum búnaði lægri iðgjöld vegna minni hættu á að þeir lendi í eða valdi slysum. Íslensk bílaumboð geta líka lagt sitt af mörkum því þau taka þátt í ákvörðunum um búnað fyrir markaðssvæðið Ísland. Þetta hefur Brimborg gert.Þess má geta að allt að 90% bílgerða í Svíþjóð eru með stöðugleikastýrikerfi, en þar í landi eru jafnframt einna fæst banaslys miðað við höfðatölu. Ef borin eru saman meðaltöl síðustu 10 ára létust í Svíþjóð 5,8 manns í bílslysum á hverja 100 þúsund íbúa en sambærileg tala á Íslandi er 8,4 eða 44% fleiri skv. skýrslu Umferðarstofu um umferðarslys fyrir árin 1997-2006.
Auðvelt er að ganga úr skugga um hvort tilteknir bílar séu búnir stöðugleikastýrikerfi eða ekki. Í bílum, sem hafa búnaðinn, er yfirleitt sérstakur hnappur í bílnum sem framleiðendur merkja á ýmsan hátt, t.d. með ESC, ESP eða DSTC. Gaumljós gefur til kynna ef búnaðurinn er ekki virkur. Einnig sýnir handbók bílsins hvort búnaðurinn er til staðar, auk þess sem söluráðgjafar innflutningsaðila viðkomandi bifreiðategunda veita þessar upplýsingar.
Hagnýtar upplýsingar
Á veraldarvefnum er miklar upplýsingar að finna um virkni og mikilvægi stöðugleikastýrikerfa, m.a. á vef Brimborgar (brimborg.is), Thatcham, NHTSA og EuroNCAP svo einhverjir vefir séu nefndir. Hér fyrir neðan eru slóðir með ýmsum hagnýtum upplýsingum á þessu sviði.
- Virkni ESC er ítarlega lýst á vef Thatcham. Þar eru jafnframt að finna myndbönd sem sýna virkni búnaðarins
- Á vef bandarísku umferðaröryggisstofnunarinnar NHTSA eru myndskeið af ýmsum tegundum bílvelta
- Á vef EuroNCAP eru ítarlegar upplýsingar um ESC og rök fyrir ágæti búnaðarins
- Á vef Thatcham eru frekari upplýsingar um ESC og ítarleg skýrsla
Flokkur: Bloggar | Laugardagur, 19. maí 2007 (breytt kl. 11:28) | Facebook
Um bloggið
Vangaveltur Egils
Nýjustu athugasemdir
- Stóra lóðamálið: Dauðaþögn borgarfulltrúa meirihlu...: Borgarstjóri gat þess ekki að Reykjavíkurborgarklíkan hefur þeg... 14.3.2010
- Stóra lóðamálið: Dauðaþögn borgarfulltrúa meirihlu...: Heill og sæll Egill. Mér fannst svar Hönnu Birnu vera útúrsnúni... 13.3.2010
- Stóra lóðamálið: Dauðaþögn borgarfulltrúa meirihlu...: Sæll Egill, þetta drottningaviðtal við Borgarstjóra í kvöldfrét... 13.3.2010
Eldri færslur
2010
2009
2008
2007
2006
Síður
- Lýðræðislegar umbætur á íslenska lýðveldinu
- Andsvar Brimborgar til borgarráðs 5. janúar 2009
- Erindi til Alþingis um etanól bíla - mars 2007
- Erindi til Alþingis um etanól bíla - Nóv. 2006
- Stöðugleikastýrikerfi í bílum bjargar mörgum mannslífum
- 3. Spurningar um menntamál
- 2. Spurningar um umhverfismál
- 1. Spurningar um samgöngu- og umferðaröryggismál
- Björt framtíð bílgreinarinnar og samfélagsleg ábyrgð
- Neytendur eru skynsamir
- [ Fleiri fastar síður ]
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.3.): 0
- Sl. sólarhring: 77
- Sl. viku: 699
- Frá upphafi: 358256
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 477
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
