"Er þetta djók eða alvöru?" spurði vinkona eins starfsmanns eftir að hafa lesið bloggið mitt. Ég er ekki viss sjálfur. Kannski bæði.
Eftir fund eldsnemma í morgun í fyrirtækinu þá var ljóst að ég myndi ekki fá það sem eftir var af myndbandinu með sömu aðferðum og ég hafði notað á fyrri hlutann. Ken hafði skrúfað fyrir lekann. Nú voru góð ráð dýr. Ég var búinn að lofa mínum lesendum öllu myndbandinu og nú leit allt út fyrir að ég gæti ekki staðið við það loforð.
Þá mundi ég eftir einu. Ég fór á bloggið hennar Önnu og...jú, það var málið. Skv. þessari bloggfærslu hjá henni var Ken ekki á landinu. Nú var tækifærið. Ég hringdi og hún samþykkti fund í fyrirtækinu sem hafði efnið undir höndum. Ég ásamt ráðgjafa mínum vorum mættir nákvæmlega klukkan 17:30. Anna kom stuttu síðar. Ungi maðurinn var á staðnum.
Við gengum inn í herbergið. Svarta myrkur. Eina ljósið, frá græjunum á borðinu. Það var varla að við kæmumst öll fyrir. Myndbandið rúllaði. Efnið var sjokkerandi. Þetta var enn heitara en ég hafði gert mér grein fyrir. Það var "must" að geta sýnt þetta á blogginu. Eftir langa samningalotu komumst við að samkomulagi um málamiðlun.
Ég fengi bílana. Hún fengi veisluna.
En ef myndbandið er heitt þá er sagan sem hún sagði okkur enn heitari. Sagan á bak við myndbandið. Loksins heyrðum við söguna alla. Eiginlega ótrúlegri saga en svo að maður trúi þessu. En svo er sagt að raunveruleikinn sé oft ótrúlegri en skáldskapurinn. Ég veit eiginlega ekki hvað ég á að halda. Ég ætla að láta söguna fljóta með hér fyrir þá sem eiga erfitt með að henda reiður á þessu öllu saman. Kannski hjálpar það. Kannski ekki.
Sagan öll
Þetta byrjaði víst allt saman í júní á þessu ári. Þá hitti Anna í fyrsta sinn Kenneth Bentley sem oftast gengur undir nafninu Ken. Hann kom í stigahúsið sem Anna býr í til að selja rækjur. Hún féll samstundis fyrir honum (þrátt fyrir lyktina) og hann fyrir henni.
Í kjölfarið sleit Anna fjarbúð sem hún hafði verið í við mann að nafni Lifur en hún ákvað að hefja fjarbúð með Lifur seint á árinu 2005. Það samband entist því stutt. Hún og Ken hafa verið saman síðan. Þó er rétt að geta þess að smá hlé varð á sambúðinni þegar Hugi, nágranni Önnu, myrti Ken, óvart. Það var lán að Anna þekkir Dr. Franklín Stein og hann gerði sér lítið fyrir og lífgaði Ken við og er víst ágætt á milli þeirra Ken og Huga í dag. (Innskot mitt: What! Ætlastu til að ég trúi þessu?)
Anna hafði ekki gert sér fulla grein í upphafi fyrir starfi Ken en vissi að hann væri breskur og að hann starfaði á alþjóðlegum vettvangi. Það var síðan bara nýlega sem hún komst að því að það er ekki nákvæmlega rétt. Í raun er hann forstjóri og eigandi World Domination Corp.
Anna ákvað fyrir löngu, að þegar hún ætti 35 ára afmæli myndi hún halda upp á afmælið með grímuballi. Það stóð auðvitað alltaf til að Ken kæmi í afmælið enda kærasti Önnu. Það fylgir víst pakkanum. En í leiðangri til Svíþjóðar var hann handtekinn. Hann hringdi því rétt fyrir afmælið og sagðist því miður ekki komast á grímuballið. Anna ákvað samt að halda sínu striki enda með fullt hús af fólki. Anna segir að Ken hafi þó sent myndatökumenn á staðinn til að taka upp herlegheitin.
Á þessu stigi finnst manni þetta orðið alltof mikið rugl til þess að geta lagt nokkurn trúnað á þetta. En þá hugsar maður um myndböndin sem ég hef undir höndum en lesa má um það hér hvernig þau komust í mínar hendur? Þau sanna að það sem gerðist var raunverulegt. Sönnunargögnin hrannast upp.
Anna hélt sögunni áfram. Á meðan hún var upp á efri hæð Sólon að halda ræðu og bjóða fólkið velkomið þá vissi hún ekki að óvæntir atburðir voru að gerast fyrir utan Sólon. Ken kom þrátt fyrir allt. Það náðist allt á mynd og myndbandið hér fyrir neðan sannar þetta. Ken kom á staðinn.
Fyrsti þáttur.
Eftir að Ken var horfinn inn á staðinn leið drykklöng stund þar til hann kom út aftur. Anna segir að veislan hafi öll verið tekin upp á myndband. Það sem gerðist í veislunni má sjá í öðrum þætti.
Annar þáttur:
Samkvæmt samkomulaginu við Önnu þá get ég eingöngu sýnt fyrsta og þriðja þátt. Annar þáttur sem inniheldur allt um veisluna sjálfa og það sem þar gerðist fékk Anna exclusive rétt á og býst ég við að hún sýni þann þátt á www.anna.is. Þetta gæti bent til þess að sá þáttur sé kannski ekki til og að Anna sé bara að spila með mig og ætli kannski aldrei að sýna neitt á sinni síðu.
Þriðji þáttur:
Latest news kl. 02:24 þann 20:10: Hér fyrir neðan mun birtast þriðji þáttur þegar ég hef fengið hann í hendur og Anna hefur gefið "go" á að hann birtist. Það verður vonandi í síðasta lagi kl. 10:00, föstudaginn 20. okt.
Í þessum þætti kemur hin endanlega sönnun að þetta var raunverulegt því Ken birtist síðan á tröppum Sólón með Önnu sér við hlið eftir dvölina inni á staðnum. Það náðist mjög góð mynd af því þegar hann kemur út og slær um sig svo um munar.
Latest news Kl. 08:32 þann 20:10: Ég var að fá myndbandið sent og það virðist vera svartur borði/kassi yfir andliti Ken í öllu myndbandinu. Ég ætla að kanna hvernig á því stendur. Læt vita fljótlega hver ástæðan er og hvenær ég get sett myndbandið inn.
Latest news kl. 10:21 þann 20.10: Þetta með svörtu borðana/kassana er eitthvert háþróað tæknimál og vinna nú nokkrir tæknimenn að því að reyna að finna út afhverju svörtu borðarnir/kassarnir leggjast allir yfir andlit Ken í öllum myndböndunum. Þeir ætla að reyna að hreinsa myndböndin og vona ég að það verði búið fyrir kl. 13:00 í dag. Furðulegt mál.
Latest news kl. 13:08 þann 20:10: Myndbandið var að koma í hús. Það eru ákveðin vonbrigði að þrátt fyrir að her tæknimanna væri settur í málið þá náðist ekki að afmá svarta borðann/kassann sem eltir Ken um allt í myndbandinu. Það bendir allt til þess að Ken ráði yfir svo háþróaðri tækni að andlit hans er alltaf blokkerað um leið og myndavél festir hann á filmu. Ótrúlegt. Þrátt fyrir þetta er myndbandið mjög áhugavert. Skoðið með því að smella á myndina.
Eins og kemur fram hér að ofan þá verður annar þáttur sem inniheldur veisluna aðeins sýndur á www.anna.is.
Flokkur: Bloggar | Föstudagur, 20. október 2006 (breytt 21.10.2006 kl. 12:14) | Facebook
Um bloggið
Vangaveltur Egils
Eldri færslur
2011
2010
2009
2008
2007
2006
Síður
- Lýðræðislegar umbætur á íslenska lýðveldinu
- Andsvar Brimborgar til borgarráðs 5. janúar 2009
- Erindi til Alþingis um etanól bíla - mars 2007
- Erindi til Alþingis um etanól bíla - Nóv. 2006
- Stöðugleikastýrikerfi í bílum bjargar mörgum mannslífum
- 3. Spurningar um menntamál
- 2. Spurningar um umhverfismál
- 1. Spurningar um samgöngu- og umferðaröryggismál
- Björt framtíð bílgreinarinnar og samfélagsleg ábyrgð
- Neytendur eru skynsamir
- [ Fleiri fastar síður ]
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.5.): 2
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 35
- Frá upphafi: 429920
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Athugasemdir
Ætlarðu að halda svona áfram lengi? :)
Fríða
Fríða (IP-tala skráð) 20.10.2006 kl. 11:13
Ef svo ólíklega vildi nú til að allt þetta er satt.Þ.e að Agli hafi verið sögð þessi saga og hann trúi henni. Þá get ég nú ekki sagt annað en, það er ótrúlegt hvað sumir eins og t.d Anna getur dregið Egil langt á asnaeyrunum og sparkað í hann og logið nánast hverju sem er, án þess að hann hafi minnsta grun um það að það, að það sé verið að hafa hann af fífli.
Sigurður Eðvaldsson, 22.10.2006 kl. 06:26
Voðalega hef ég látið draga mig á asnaeyrunum þegar ég las Hringadróttinssögu. Eða ævintýrin þegar ég var lítil.
Fríða, 22.10.2006 kl. 08:21
Góðan daginn, Sigurður og gaman að sjá þig í kommentakerfinu. Vertu velkominn. Fínt, bloggið þitt. :)
Þú verður bara að fylgjast með áfram. Kannski er þetta eins og Fríða segir, dálítið ævintýri. Hver veit. Veitir okkur ekki öllum af smá ævintýrum svona annað slagið?
Ég kíkti á síðuna hennar Önnu núna, www.anna.is. Hún var að skrifa fleiri færslur með fullt myndum. Kannski eru þær raunverulegar. Kannski eru þær fótósjoppaðar. Eða bæði.
Egill Jóhannsson, 22.10.2006 kl. 08:36
Ég skil nú ekki hvað það er við þessa færslu sem Sigurði finnst óraunverulegt.
Getur það verði að maður sem stefnir á heimsyfirráð hafi kynnst framtíðarkonu sinni þegar hann var að selja rækjur í vesturbænum? Eða að hún hafi virkilega slitið drauma sambúðarforminu með Lifur í kjölfarið? (Ég persónulega botna nú ekkert í þeirri ákvörðun hennar, meina þau áttu Margeir saman og allt).
Veit ekki, ég sá að vísu aldrei upphandleggsvöðvana á Ken en Henchmennirnir, vá!
Ég ætla að benda henni á þá...
Harpa (IP-tala skráð) 22.10.2006 kl. 10:24
Takk fyrir hólið Egill.Jú kannski er þetta sönn saga oft á tíðum getur sannleikurinn verið lyginni líkastur.Eins er það hárrétt hjá þér með að alltaf gaman að lenda í ævintýri af og til.Það er mjög góð tilbreyting frá hverdagsleikanum.En ég fylgist áfram með sjáum hvað verður úr þessu. Kveðja S.E
Sigurður Eðvaldsson, 23.10.2006 kl. 23:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.