Nú er wiki vefur Lýðveldisbyltingarinnar kominn upp og orðinn virkur. Nú er það undir grasrótinni komið að láta hann verða að virku tæki til að knýja á um breytingar í lýðræðisátt. Grasrótin ræður á þessum vef.
Ég vil benda þeim á sem skoða vefinn nú að hafa í huga að allt er gert on-line og því lítur þetta auðvitað hrátt út í byrjun. En það er einmitt mikilvægt að þetta sé allt gert fyrir opnum tjöldum. Allir eru velkomnir. Allir jafn réttháir. Eina krafan að vanda vinnubrögð og rökstyðja mál sitt.
Þetta virkar þannig að allir geta tekið þátt í að skrifa á vefinn og það er því þeirra framlag til að móta stefnuna. Allur texti birtist á vefnum og allar breytingar. Það er möguleiki fyrir fólkið í landinu að standa saman og koma á breytingum. Vilji er allt sem þarf.
Flokkur: Bloggar | Miðvikudagur, 14. janúar 2009 (breytt kl. 09:12) | Facebook
Um bloggið
Vangaveltur Egils
Nýjustu athugasemdir
Eldri færslur
2010
2009
2008
2007
2006
Síður
- Lýðræðislegar umbætur á íslenska lýðveldinu
- Andsvar Brimborgar til borgarráðs 5. janúar 2009
- Erindi til Alþingis um etanól bíla - mars 2007
- Erindi til Alþingis um etanól bíla - Nóv. 2006
- Stöðugleikastýrikerfi í bílum bjargar mörgum mannslífum
- 3. Spurningar um menntamál
- 2. Spurningar um umhverfismál
- 1. Spurningar um samgöngu- og umferðaröryggismál
- Björt framtíð bílgreinarinnar og samfélagsleg ábyrgð
- Neytendur eru skynsamir
- [ Fleiri fastar síður ]
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.2.): 70
- Sl. sólarhring: 84
- Sl. viku: 1112
- Frá upphafi: 346688
Annað
- Innlit í dag: 47
- Innlit sl. viku: 782
- Gestir í dag: 43
- IP-tölur í dag: 31
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Athugasemdir
Sæll Egill og öll hin. Snjóboltinn er farinn að rúlla. Nú er að sjá hvort ég og aðrir séu þess megnugir að fylgja orðum úr hlaði, nú þegar alvaran hefur tekið við. Vonandi tekst okkur að vinna faglega að málum.
Nú er að duga eða drepast. Virkja þekkinguna sem allir tala um að við höfum svo mikið af. Ekki mega þeir sem eru á móti fá ástæðu til að glotta.
Íslendingur sem vill...
P.s. Ahverju er ég að skrifa fyrstu ath-færsluna, klukkutíma eftir bloggfærslu Egils. Hvar er það fólk sem maður treystir á? Erum við að gugna?
Íslendingur (IP-tala skráð) 14.1.2009 kl. 10:20
Sæll Egill,
stórkostlegt framtak og þið Anna hafið gert góðan hlut. Ég hvet alla til að kynna sér síðuna og hella úr skálum þekkingar og skoðanna sinna.
Íslendingur, ef til vill er fólk að vinna og kemst ekki í tölvu. Dont worry...
Gunnar Skúli Ármannsson, 14.1.2009 kl. 10:36
Takk Gunnar Skúli og íslendingur
Þessi tilraun með þennan vef er í raun áhugaverður prófsteinn á það hvort allir þeir sem hafa tjáð sig, fyrst í reiði og síðan margir með lausnum, séu í raun tilbúnir til að byrja að setja lausnirnar niður kerfisbundið.
Það er nefnilega það erfiðasta. Það er ekkert mál að gagnrýna. Vandinn er að koma með lausnir og setja þær í framkvæmd. En ekki þýðir að ætlast til að almenningur komi með fullbúnar lausnir upp úr hattinum eins og margir fréttamenn hafa gefið í skyn með spurningum.
Þess vegna þarf að búa til farveg fyrir almenning til að koma sínum litlu lausnum í samhengi við aðrar litlar lausnir við vel skilgreindu vandamáli. Saman verða þær að stórum lausnum sem leysa stóra vandamálið.
Nýi vefurinn er tæki til þess, ekki í eign neins og því hafa allir jafn mikinn aðgang. Ekki er því hægt að bera fyrir sig að einhver sé að eigna sér eitthvað.
Það versta við lýðræðisbyltingar er að þeir sem ná völdum verða oft á ógnarhraða alveg eins og þeir sem þeir gagnrýndu og veltu frá völdum. Því er mikilvægt að mínu viti að allt sé gert fyrir opnum tjöldum.
Ég hef heyrt í mörgum undanfarnar vikur og sumum sem hart ganga í baráttunni. Sumir þeirra hafa haldið því fram að það þurfi að vinna hlutina á bakvið tjöldin til þess að hinir fatti ekki hvað verið er að gera. Koma á óvart.
Bíddu við, átti þetta ekki að vera betra lýðræði var mitt svar. Ég hélt að lýðræði væri umræða fyrir opnum tjöldum? Nei, nú er bara að byrja að skrifa og sýna í verki það sem menn segja í orði.
Egill Jóhannsson, 14.1.2009 kl. 10:49
Þetta er frábært framtak hjá ykkur Önnu. Takk!
Ég er búinn að skrá mig inn og stefni að því að byrja að setja inn efni í kvöld.
Við verðum líka að vera dugleg að láta sem flesta vita af vefnum og hvetja fólk til að taka þátt og skrifa.
Geir Guðmundsson (IP-tala skráð) 14.1.2009 kl. 11:06
Lofsvert og athyglisvert framtak.
Kann ekki ennþá að umgangast þennan vef. Læri það vonandi því ég vildi gjarnan leggja sitthvað til málanna á þessum vettvangi.
Kristján Sveinsson (IP-tala skráð) 14.1.2009 kl. 11:42
Það er spurning hvort rétt væri að hafa smá námskeið í wiki skrifum fljótlega?
Ég get lagt fram kennslustofu með skjávarpa og öllu tilheyrandi. Ég get hins vegar ekki kennt efnið, því ég er byrjandi í því. Sá sem kenndi mér er núna í augnablikinu í Afganistan að lýðræðivæða framleiðslutækni þar í landi með því að koma upp FabLab (http://fab.cba.mit.edu/).
Geir Guðmundsson (IP-tala skráð) 14.1.2009 kl. 13:55
Takk fyrir Geir og Kristján
Þetta er frábær hugmynd og ekki síður þessi tilvísun í fablab. Ég þakka fyrir boðið og mæli með að þú setjir þessa hugmynd inn á lydveldisbyltingin.is
Þessi hugmynd þín er í raun algjörlega í anda við það hvernig þetta er hugsað og hvernig grasrótin getur þróað verkefnið áfram.
Nú er bara að setja þetta upp á vefnum eins og ég sagði, finna kennara og biðja síðan fólk að skrá sig á námskeið.
Egill Jóhannsson, 14.1.2009 kl. 14:09
Ég myndi gjarnan vilja mæta á e-s konar kynningu og samráðsfund ef kennari finnst. Annars var ég að setja inn nokkra punkta hér áðan. Spurning hvernig umræðan á að eiga sér stað þegar fólk er ósammála (sem það oftast er).
Sigurður Hrellir, 14.1.2009 kl. 16:52
Ég er búinn að finna góðan kennara sem hefur líka mikinn áhuga á þessu efni. Hann gæti hugsanlega verið með námskeið laugardaginn 31. janúar. Spurning að ákveða þetta strax og auglýsa? Kannski þörf á námskeið fyrr?
Þangað til gætu sjálfboðaliðar tekið við texta frá fólki og sett inn. Það er ekki mjög flókið að nota wiki kerfið og mikilvægt er að sem flestir læri að setja inn efni og breyta því efni sem fyrir er.
Hugmyndin að baki wiki er að textinn er sameigin allra og endurspegli það sem allir eru sammála um. Ef fólk nær ekki að vera sammála, þá er reynt að setja fram ólíkar skoðanir á sem hlutlausastan hátt þannig að allir verði sammála um að vera ósammála um það efni.
Í upphafi geta verið smá átök og örar breytingar á texta, en svo sýnir sagan að fólk nær saman og sameiginlegur texti verði betri, nákvæmari og hlutlausari en ef hver og einn ætti sinn texta á sömu síðu. Gott dæmi er Wikipedia.
Við getum líka haft reglulega fundi til að hittast og kynnast og til að kynna vefinn fyrir áhugasama og fjölmiðla.
Geir Guðmundsson (IP-tala skráð) 14.1.2009 kl. 19:20
Kristján, Geir og Sigurður.
Takk fyrir innleggin.
Ég er sammála með námskeið en það væri frábært ef þið gætuð sett ykkar tillögur inn á vef Lýðveldisbyltingarinnar. Rétti staðurinn þar væri síða sem heitir Potturinn. Þar er Bjarki, sem er admin á vefnum, búinn að setja inn nokkrar leiðbeiningar um notkun.
Ég er sammála Geir að nota þær aðferðir sem Wiki samfélagið hefur þróað til að nota á þessum vef. Eins og hann segir réttilega þá verða í upphafi eflaust átök og þannig á það að vera. Og örar breytingar. En síðan ná menn samkomulagi enda markmiðið að umræðan sé lýðræðisleg og fyrir opnum tjöldum.
Fundur sem tengdist námskeiðinu sem Geir nefnir gæti verið gott start á því hvernig þetta málefni er rætt off-line en gríðarlega mikilvægt er þó að sem mest umræða fari fram on-line til þess að öll grasrótin sé með. Það er mikilvægt.
Það er t.d. mjög mikilvægt að landsbyggðin fái að taka þátt og oft er eina leiðin netið því þar eru allir á jafnréttisgrunni. En ég mæli nú með að þessi umræða sem er á þessu bloggi um þetta mál færist nú yfir á wiki vefinn þannig að allir sjái hvað við erum að spjalla.
Egill Jóhannsson, 14.1.2009 kl. 20:47
Búinn að skrá mig. Hlakka til námskeiðs. Vantar að koma eftirfarandi á framfæri. Koma með tilbúinn frumvörp til stjórnarskrábreytinga, samþykkja, rjufa þing og kjósa síðan nýja stjórnarskrá. Þessar hugmyndir sem eru að gerjast hjá fólki út um allt er bjartasta vonin um betri framtíð. Hafið þökk fyrir.
Birgir Hauksson (IP-tala skráð) 18.1.2009 kl. 15:05
Birgir.
Vonandi er hægt að koma á námskeiði sem fyrst. En ég hikaðu samt ekki við að fara inn á vefinn og prófaðu þig áfram að setja inn efni. Á forsíðunni er búið að setja upp ákveðna flokka sem þarf að ræða. Smelltu á þá flokka sem þú hefur skoðanir á eða alla og skrifaðu þínar hugleiðingar.
Egill Jóhannsson, 18.1.2009 kl. 20:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.